Sony Xperia Z Ultra - Endurræsing og endurstilling tækisins

background image

Endurræsing og endurstilling tækisins

Hægt er að þvinga tækið til að endurræsast eða slökkva á sér ef það verður óvirkt eða

endurræsist ekki eðlilega. Engar stillingar eða persónuleg gögn munu eyðast.
Þú getur endurstillt tækið þitt í upprunalegar stillingar. Þessi aðgerð er stundum

nauðsynleg ef tækið hættir að virka eðlilega, en athugaðu að ef þú vilt halda einhverjum

mikilvægum gögnum verðurðu fyrst að taka öryggisafrit af þeim á minniskort eða annars

konar ytra minni. Nánari upplýsingar

Öryggisafritun og endurheimt efnis

á bls. 131 .

133

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Ef ekki tekst að ræsa tækið eða þú vilt núllstilla hugbúnað tækisins getur þú notað

Xperia™ Companion til að gera við tækið. Frekari upplýsingar um hvernig eigi að nota

Xperia™ Companion eru á

Tölvuverkfæri

.

Verið getur að tækið geti ekki endurræst ef hleðsla rafhlöðunnar er lítil. Tengdu tækið við

hleðslutæki og reyndu aftur að endurræsa.

Ef þú notar tæki með mörgum notendum, getur verið að þú þurfir að skrá þig inn sem eigandi,

það er, aðalnotandi, til að núllstilla tækið.

Tækið þvingað til að endurræsa sig

1

Ýttu á og haltu inni rofanum .

2

Í valmyndinni sem opnast pikkarðu á

Endurræsing. Tækið endurræsist sjálfkrafa.

Tækið þvingað til slökkva á sér

1

Fjarlægðu hlífina á raufinni fyrir minniskortið og micro SIM kortafestinguna.

2

Ýttu á og haltu niðri OFF-takkanum með því að nota pennaodd eða álíka hlut.

3

Eftir að tækið titrar nokkrum sinnum sleppirðu OFF-hnappinum. Tækið mun

slökkva sjálfkrafa á sér.

Ekki nota of hvassa hluti sem gætu skemmt OFF-takkann.

Skipta í sjálfgefnar stillingar

Til að komast hjá varanlegu tjóni á tækinu skaltu ekki endurræsa það á meðan núllstilling

stendur yfir.

1

Áður en þú byrjar skaltu taka afrit af öllum mikilvægum gögnum sem vistuð eru í

innra minni tækisins á minniskort eða annars konar ytra minni.

2

Í Heimaskjár, pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar >Öryggisafrit og núllstilling > Núllstilla símann.

4

Til að eyða upplýsingum, eins og myndum og tónlist úr innri geymslu merkirðu við

Eyða innri geymslu gátreitinn.

5

Pikkaðu á

Núllstilla síma.

6

Teiknaðu opnunarmynstur skjásins, eða sláðu inn opnunarlykilorð skjásins eða PIN

ef þörf krefur til að halda áfram.

7

Til að staðfesta pikkarðu á

Eyða öllu.

Tækið þitt skiptir ekki í nýrri hugbúnað Android™ þegar þú skiptir í sjálfgefnar stillingar.

Ef þú gleymir lykilorði, PIN eða mynstri til að opna skjáinn, geturðu notað viðgerðareiginleika

tækisins í Xperia™ Companion forritinu til að eyða út þessu öryggislagi. Þú þarft að gefa

innskráningu í Google reikninginn til að framkvæma þessa aðgerð. Með því að velja

viðgerðareiginleikann enduruppseturðu hugbúnað fyrir tækið og gætir tapað persónulegum

gögnum um leið.

134

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Til að gera við hugbúnað tækisins með Xperia™ Companion

Áður en hugbúnaðarviðgerð er framkvæmd þarftu að ganga úr skugga um að þú veist

Google™ skilrýkin. Það fer eftir öryggisstillingum hvort þú þurfir að slá þá inn í því skyni að

ræsa tækið upp eftir hugbúnaðarviðgerðina.

1

Tryggðu að Xperia Companion er settur upp á tölvunni eða Mac

®

.

2

Opnaðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn í tölvunni og ýttu á

Software repair á

aðal skjánum.

3

Fylgdu leiðbeiningunum sem birtast á skjánum til að setja upp hugbúnaðinn og

ljúktu við viðgerðina.