Týnt tæki fundið
Ef þú ert með Google™ reikning getur „Protection by my Xperia“ netþjónustan hjálpað
þér að finna og tryggja tækið ef þú glatar því. Ef þú hefur kveikt á þessari þjónustu í
tækinu þínu eða á
myxperia.sonymobile.com
, getur þú:
•
Staðsett tækið þitt á korti.
•
Látið áminningartón hljóma jafnvel þótt tækið sé í hljóðlausri stillingu.
•
Fjarlæst tækinu.
•
Fjareytt öllu úr innri og ytri minnisgeymslu tækisins þegar allt annað hefur verið reynt.
„Protection by my Xperia“ þjónustan er e.t.v. ekki í boði í öllum löndum/svæðum.
Protection by my Xperia þjónustan virkjuð á tækinu þínu
1
Gakktu úr skugga um að þú sért með virka gagnatengingu.
2
Á Heimaskjár pikkarðu á .
3
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Öryggi > Vernd með my Xperia > Virkja.
4
Ef þú ert að virkja þjónustuna í fyrsta sinn, merktu við gátreitinn til að samþykkja
ákvæði og skilmála þess að nota Protection by my Xperia þjónustuna og pikkaðu
svo á
Samþykkja.
5
Ef þú ert beðin(n) um það skaltu skrá þig inn á Google™ reikninginn þinn, eða
stofna nýjan ef þú átt ekki reikning fyrir.
6
Gerðu staðsetningarþjónustur virkar í tækinu ef þær eru það ekki fyrir.
Til að staðfesta að Protection by my Xperia þjónustan finni tækið eftir að þú virkjar þjónustuna
ferðu á
myxperia.sonymobile.com
og skráir þig inn með sama Google™ reikningi og er
uppsettur á tækinu.
Ef þú notar tæki með mörgum notendum skaltu athuga að Protection by my Xperia þjónustan
er aðeins aðgengileg notandanum sem er skráður inn sem eigandinn.